Dagurinn byrjaði nú ekki skemmtilega, ég vaknaði kl. 2 eftir
tveggja tíma svefn og gat ómögulega sofnað aftur. Fyrr en kl.
7. Og kl. 8 þurfti ég að hífa mig á lappir til að koma
strákunum í skólann, svo að heildarsvefn næturinnar var rétt um 3
tímar. Ekki fönguleg byrjun á fyrsta skóladeginum. En
ég hafði nú samt af að hressa mig við og mæta - kannski ekki
eldhress - í stærðfræðigreiningu, taka 2. Mér leist nú mun
betur á þennan kennara heldur en þann sem var fyrir áramót.
Það var hressandi tilbreyting að sitja og láta sér leiðast af því
að ég kunni allt sem kennarinn var að tala um.

Það
gefur manni smávon um að geta fylgst með að þessu sinni.
Síðan var almenn jarðeðlisfræði, loksins eitthvað
almennilegt! Lögun jarðar og þyngdarsvið og GPS mælingar og
segulsvið og geislavirkni og skjálftabylgjur og margt margt
fleira! Svona á þetta að vera! Það sakar heldur ekki að
Magnús Tumi skuli kenna hluta námskeiðsins...

Ég býst við
að eftir fyrirlestrana hefði verið skynsamlegt að dempa sér í
lesturinn en þriggja tíma svefn er engan veginn fyrir svoleiðis
átök svo ég fór bara heim og lagði mig. Lesturinn byrjar á
morgun.