Tröllheimar

Hér munu vera tröll... (eða stórt fólk á pólitískt réttu máli)

25.03.2006 17:03:46 / gerdursig

Og netið komið í lag!

Þráðlausa netið og allt!  Lífið er sannarlega dásamlegt!  Siggi vann sér inn bökunardag með því að vera duglegur að læra heima (meðal annars) svo við skelltum okkur í að baka eina súkkulaðiköku a la Star Wars (ekki spyrja) með dyggri og ákafri aðstoð Önnu Lindu.  Axel vildi ólmur og uppvægur hjálpa líka en þar sem hann var að fara í afmæli var honum tilkynnt að það væri ekki hægt að gera allt og allra síst í einu.  Það vakti lítinn fögnuð en jafnaði sig þó að lokum.  Og Þórhildur dúllustelpa er búin að þrífa Nýlendugötuna fyrir mig!  Gæti lífið verið betra?


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 12:32:29 / gerdursig

Nú er ég flutt...

á stúdentagarða!  Loksins!  :D  Bara eftir að koma mér fyrir... en það er nú hægt að dunda við það í rólegheitum.  Eins og gefur að skilja er allt soldið upp í loft núna og netið er ekki almennilega komið í lag, mér til mikillar armæðu :S  En ég get nú alltaf skokkað á lesstofuna til að komast á netið - þarf ekki einu sinni að fara út!

Já, og Guðfinna - tuðfinna - táfýla:  Takk fyrir innlitið!  Gaman að sjá þig á blogginu mínu :D  Ég ætla að koma til ykkar í leikhúsið við alfyrsta tækifæri (sem ég veit reyndar ekki alveg hvenær verður en vonandi fljótlega) og ég er búin að skrá mig á námskeiðið hjá Ágústu í faðmlagadalnum í sumar!  Maður sleppir því nú ekki...


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 16:16:54 / gerdursig

Selfoss...

Ég á heima á Selfossi. Sama hvar núverandi dvalarstaður og lögheimili er.  Í hvert skipti sem ég kem yfir heiðina, á Kambabrún, þegar ég sé yfir Ölfusið og Ingólfsfjall leggst yfir mig ró og friðsæld sem ég bara finn hvergi annarsstaðar.  Ég er komin heim.  Svo þegar ég verð stór (þó ég voni reyndar að líkamlega stækki ég ekki meira...) ætla ég að búa á Selfossi.  Og fá vinnu í jarðskjálftamiðstöðinni.  Ég komst nebblega að því þegar Páll Einarsson byrjaði að fjalla um jarðskjálfta, að mér finnast jarðskjálftar skemmtilegri en þyngdar- og segulsvið.  Og eldgos.  Eldgos eru líka skemmtilegri.  Svo þetta gæti bara ekki passað betur!!  Nú þarf ég bara að halda út nokkur ár í stórborginni 8), svo get ég farið heim aftur.  Þangað til verður mamma víst að sitja upp með mig nánast hverja helgi.... ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 21:19:13 / gerdursig

Svííín eru fííín...

jebbjebbjebb...

Flutningar eru komnir í gang...  Allt í rólegheitunum, ég er búin að vera að mana mig upp í að drífa í þessu - var ekkert yfir mig spennt að leggja í flutninga einu sinni enn þó að það sé vissulega von til þess að sjái fyrir endan á þeim.  :S (Horfi bænaraugum til himins og ákalla alla guði, gyðjur og vætti sem mögulega gætu heyrt til mín...)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 14:12:42 / gerdursig

Þá hef ég prófað það líka...

Ég var ss stöðvuð áðan fyrir of hraðan akstur - var á um 90 þar sem hámarkshraði er 70.  Ég meina, hvað er það nú milli vina?!  Þetta var alveg ný lífsreynsla fyrir mig og nú hef ég upplifað að lögreglumaður segir við mig: "Þú þarft ekki að tjá þig frekar en þú vilt" !!8)

Er þetta ekki bara nauðsynlegur hluti af lífsreynsluflórunni? :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 11:19:20 / gerdursig

Ef x > 2pí...

þá er sin x ≤ 1 < 2π < x.  Ef 0 < x ≤ 2π, þá, skv. meðalgildissetningunni, er til c á opna bilinu ]0, 2π[ þannig að (sin x)/x = (sin x – sin 0)/(x-0) = d/dx (sin x) í x=c = cos c < 1

 

Meikar sens?  Nei?  Það finnst mér ekki heldur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 12:17:12 / gerdursig

Magaverkir...

Sigga er alltaf "illt í majanum" - sérstaklega þegar hann á að fara í skólann.  Það virðist hinsvegar ekki há honum mikið þegar hann er að æfa geislasverða-skylmingar með bróður sínum.  Ég hafði reyndar soltlar áhyggjur um daginn þegar hann vildi ekki einu sinni koma með okkur að kaupa búning fyrir öskudaginn - búningar eru jú hans líf og yndi og hann var búinn að tala um þetta í marga daga.  Hins vegar var mjög spennandi teiknimyndi á Disney rásinni akkúrat þá... og ef það er eitthvað sem heldur athygli Sigga er það spennandi teiknimynd.  Veit ekki hvað ég á að gera við strákinn... ég er eiginlega alveg viss um að þetta er eitthvað sálrænt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 18:38:28 / gerdursig

Vá!

Er í alvöru kominn 6. mars?  Og ég sem á svo mikið eftir að læra fyrir prófin... sem NB eru 3. og 5. maí, svo það er nú ekki langur tími á milli til að lesa og ég þarf því að vera því duglegri fyrir þann tíma. :|

Að öllu óbreyttu ætti ég að fá afhenta lykla að nýju íbúðinni minni á stúdentagörðum á morgun... jibbíkóla!  Síðan hef ég til 1. apríl til að flytja, þar sem ég var búin að borga þann tíma í þessari íbúð.

Annars bara drattast lífið sinn vanagang... og já, Túrilla litla systir verður tekin á orðinu og sent beint inn á Vog - með námsbækurnar - ef henni svo mikið sem dettur í hug að fara út að djamma fyrir útskrift!  Beware, litla systir!


» 1 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
21. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 79032
Könnun
Hvort er maður meiri nörd ef maður er í þjóðfræði eða jarðeðlisfræði?




Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Ég á...
Þjóðfræðinemar!
Myndir!