Tröllheimar

Hér munu vera tröll... (eða stórt fólk á pólitískt réttu máli)

29.07.2007 22:19:26 / gerdursig

Já, nú fer...

alveg að skella á frumsýning!

Leikfélagið Sýnir

frumsýnir

Vakandi manns draum

í Öskjuhlíðinni (gryfjunum fyrir ofan Keiluhöllina)

miðvikudaginn 1. ágúst nk. kl. 20.00

Og hefi ég þann sopa sætastan sopið


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 22:08:03 / gerdursig

Tíðindalaust...

úr vesturbænum...

Nema nottla það teljist til tíðinda að uppþvottavélin sem ég fékk fyrir mánuði sé loksins komin í gagnið...

Gat meiraðsegja tengt hana sjálf og allt! 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 15:05:51 / gerdursig

Úff...

þetta er búin að vera meiri vikan...

Hiti og börn og börn og hiti og meiri hiti og börn.

Og drasl.  Og meira drasl.  Og ennþá meira drasl.

The black dog rears it's ugly head... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 13:54:50 / gerdursig

Já, ýmislegt...

hefur maður haft fyrir stafni undanfarið.

Leikhúsnámskeið sem heppnaðist einstaklega vel og strax farið að hugsa um næsta sumar, svo fer bara alveg að skella á frumsýning hjá Sýnum á sýningu sem hefur hlotið nafnið "Vakandi manns draumur".

Sýnir fóru einmitt í leikbúðir á Selfossi um helgina...

Tónlistaræfing

Biðskiltagrill 

Meiri myndir...


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 17:22:36 / gerdursig

Dásamleg börn...

á leikhúsnámskeiði...

Tröll á leið yfir götu

 

Innkaupatröll 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 10:54:34 / gerdursig

Loooooooooooksins...

rigning!

Hver hefði trúað því að maður yrði svona feginn að fá rigningu?

Ég er nú samt líka fegin að það er ekki æfing í kvöld... Það ER betra að æfa úti þegar það er þurrt...

Æfingar ganga samt vel - það er að fæðast mjög falleg sýning um samskipti manna og álfa hjá Sýnum þessa dagana... Frumsýning er áætluð miðvikudaginn 1. ágúst.

Hmmm... Kannski maður ætti að fara að hafa myndavélina með á æfingar...?


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 12:09:03 / gerdursig

Ég var...

að uppgötva STÓRKOSTLEG SANNINDI:

Ef maður vill verða góður í einhverju þarf maður að ÆFA SIG!

Þetta finnst mér merkilegt...

Ég er til dæmis að verða hrikaleg góð í Solitaire í tölvunni... 


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 12:01:38 / gerdursig

Ég er...

ruglustrumpa :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 23:50:26 / gerdursig

Je minn

EINI!  295!  Nú held ég að þessi blessaði teljari sé endanlega búinn að tapa glórunni...

En þið sem kíkið hérna við megið samt alveg segja hæ öðru hverju sko...  Mér fyndist það ekkert leiðinlegt... :haha:

Ég er ennþá í notalegheitum hjá mömmu í sveitinni :haha:   Mágkonu minni finnst ég fyndin.  Í vetur bjó ég og starfaði í Reykjavík og keyrði svo austur til að æfa leikrit.  Núna er ég á Selfossi og keyri í bæinn til að æfa leikrit.  Bílnum mínum finnst þetta samt ekki fyndið.  Hann mótmælir hástöfum, nötrar og skelfur og hikstar og höktir og finnst að ég eigi bara að ætta að níðast svona á honum.  Eða allavega fá tíma fyrir hann í góðu spa í nokkrar vikur.  Væri kannski hugmynd.  Ég vil síður að hann stræki á mig einhverntíma í vetur...


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 11:51:08 / gerdursig

Ég er hjá...

mömmu.  Það er sko gott.  Ég get farið út á pall og setið í morgunsólinni með morgunteið mitt og látið hlýja goluna gæla við mig.  Mmmmm...

Við Hunangsbýflugan erum að kenna börnum leikhús.  Það er gaman - þó ég sannfærist alltaf betur og betur um að ég vilji ekki vera kennari á yngsta stigi...  Eða miðstigi ef út í það er farið.  En svona stuttur tími í einu er bara fínt.   Börn eu æðisleg.  Í hæfilegum skömmtum.  :haha:

Talandi um börn - pjakkarnir mínir eru í sumardvöl hjá pabba sínum svo ég sé þá ekki aftur fyrr en eftir tæpar tvær vikur.  Þá verður nú gott að knúsa þá og kreista!

Svo er ég að skrifa pínu - fróðleik um álfa fyrir Álfasýningu Sýna.

Æ hvað það er bara gott að vera til núna :D 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 17:04:51 / gerdursig

Ég á við...

ákveðið vandamál að stríða.

Mér gengur svo illa að klára hlutina að ég næ ekki einu sinni að byrja á þeim. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 09:28:10 / gerdursig

Það stóð heima...

Ég vaki til klukkan 3 til þess að taka til heima hjá mér vegna þess að það er ekki hægt að gera það fyrr en það kólnar aðeins með kvöldinu - og daginn eftir er alskýjað.

Og ég þarf að vakna rúmlega 8 til að keyra Axel á klifurnámskeið - hálftíma bíltúr.

Hrmpf.

Ég held ég leggi mig bara aftur. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 09:49:34 / gerdursig

Siggi:

"Mamma, hver er gráðugasti osturinn?  (Þú átt að segja ég veit það ekki)"

Mamman:  "Ég veit það ekki!"

Siggi:  "Gráðostur!  Hahaha!" 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 23:07:57 / gerdursig

Stíflað klósett...

er ekki beinlínis það skemmtilegasta sem uppá getur komið á heimilinu.

Í gær þurfti ég sumsé að fara í Húsasmiðjuna í Skútuvogi (líklega eini staðurinn í Reykjavík þar sem hægt er að nálgast stíflueyði eftir kl. 5 á sunnudegi...) og ná mér í þetta líka béaða eitur sem stíflueyðir er.  66% brennisteinssýra, hvorki meira né minna.  Gerasvovel að nota hanska og hlífðargleraugu og hella í gegnum sérlegatilþessfylgjandi trekt.

Nú ég fylgdi öllum leiðbeiningum sem fylgdu og varúðarráðstöfunum sem mér kom í hug - lét drengina loka sig inni í herberginu sínu og hafði opið út á svalir - en af einskærri móðurumhyggju ákvað ég samt að hafa lokað á klósettinu meðan á framkvæmdinni stóð.  Ég hafði jú þurft að gera þetta einu sinni áður (sko þvílík framleiðsla hjá þessum drengjum... 8|) og hélt að það ætti nú að vera í lagi...

En neinei, þetta var sko ekki sami stíflueyðirinn og ég notaði síðast og þegar ég byrjaði að hella fór að krauma og vella í klósettinu og upp úr því steig baneitraður mökkur.  Nornapottur hvað?

Svo ég teygði mig í hurðina og opnaði fram til að hljóta nú ekki varanlegan lungnaskaða og lauk að sjálfsögðu við að hella í klósettið - maður hættir nú ekki bara í miðju kafi, eiturgufur or not!

Það þurfti að hafa alla glugga og hurðir opnar í góða stund (allavega á meðan við skruppum út í búð - höfðum vit á að yfirgefa svæðið!) til að hreinsa fnykinn út. 

Klósettið er allavega orðið nothæft aftur.  Í bili.  Held ég nái mér í stíflueyði í BYKO næst.


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 09:38:11 / gerdursig

Ljótu hálfvitarnir...

sem hvorki eru neitt afspyrnu ljótir né sérlega miklir hálfvitar (held maður geti nú varla verið mjög mikill hálfviti og spilað svona vel líka...:haha: ) en eru nú samt ljótu hálfvitarnir voru að gefa út sinn fyrsta geisladisk (held ég alveg örugglega) og voru af því tilefni með útgáfutónleika á stóra sviði Borgarleikhússins á laugardagskvöld. Það var gaman. Fannst mér og báðum drengjunum mínum - sérílagi þeim yngri sem undir það síðasta hefði sennilega sómt sér ágætlega með ljótuhálfvitaaðdáendumnúmereitt á fremsta bekk - snarvitlaust lið - :P

Ég er að sjálfsögðu komin með diskinn í hendur og það er nú ekki oft sem ég fæ disk í hendur sem ég get hlustað á út í gegn. Öll lögin. Það er líka gaman. Er strax farin að hlakka til næsta disks.

Til lykke, Ljótu hálfvitarnir ykkar!


» 0 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
21. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 79032
Könnun
Hvort er maður meiri nörd ef maður er í þjóðfræði eða jarðeðlisfræði?




Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Ég á...
Þjóðfræðinemar!
Myndir!